...Elsa Arney Helgadóttir
Ástkæra ylhýra austurlandið var heimsótt um helgina.. reyndar var að mestu leyti staldrað við á Reyðarfirðinum, en vegna rokrassgats urðum við hjónaleysin veðurteppt... þannig að við breyttum bara fluginu fram á þriðjudagsmorgun og áttum því góðan dag í firðinunum fagra kæra! djöfull var ljúft að koma heim og fengum mjólkurgraut og sviðasultu hjá mömmu... nú veit ég að eyrún systir mín les þetta með tárin í augunum! æææ
Verð samt að segja og troða þar með uppí röven á mótmælendum, að álverið er snilld... virkilega smekklegt og falleg bygging...kannski svolítið yfirgnæfandi stórt... og á dauða mínum átti ég nú von en uppbyggingin á reyðarfirði... ég bara átti ekki orð... til hamingju austurland!
annars lítið að gerast.. ekki nema 3 vikur eftir af skólanum... djö líður þetta hratt.. önnin varla byrjuð... þetta er svona þegar ellin fer að færast yfir... dagarnir líða eins og mínútur og fyrr en varir drepst maður! ó shit
peace out...
Elsa ...
Miklu meira en spenntur...Elsa Arney Helgadóttir
... á Broadway hélt hópurinn á laugardaginn.. frábærir tónleikar og stórgott ball... Magni stóð sig frábærlega og Dilana kom ekkert á óvart... djöfull er kerlingin flott!!
Hef sjaldan séð hann pabba minn jafn heillaðan, reyndar sáum við hann ekki mikið á tónleikunum því að hann var allur í því að komast eins nálægt goðunum og hægt var... held að það sé ekki hollt að blikka augunum ekki neitt í svona langan tíma! En í alla staði ... bara frábært og dagurinn á eftir bar þess merki og það var stórkostlegt!
Ballið samt fór eiginlega í það að standa uppá borði og dansa og horfa á herlegheitinn... fyrir utan það að ég og Hafþór Valur fórum í mission hversu langt við kæmumst upp að sviðinu... var ekki mjög langt... svo dönsuðum við, ég hrundi af stól, drakk nokkra bjóra.... þakkaði goðinu fyrir mig, fór heim, eldaði hvítan pipar með smá hakki og spagettí og hrundi í rúmið! Hvernig er hægt að kvarta??
Annars held ég að uppáhalds mómentið mitt hafi verið að horfa á Dilönu spila á tambórínu við Spenntur... who saw that coming.... frábært, og ég söng með hástöfum!
Fleira er það ekki í bili, takk fyrir mig!
Púkar djöfulsins...Elsa Arney Helgadóttir
dansa trylltan í dag í lungnapípum mínum...
Fór til læknis í gær...
2 vikna kvef... tjekk
Óstjórnleg hóstaköst þar til maður kúgast...ó tjekk
Slím í lungum... tjekk
Bronkitis... TJEKK
Pensilín... tjekk
Hættu að reykja...
jafnvel...
Elsa - sjúkur einstaklingur!
As a blogger, I suck...Elsa Arney Helgadóttir
en lofa að reyna að bæta fyrir öll mistök mín í fyrra blog lífi með því að deila nú með ykkur innantómum sögum úr lífi mínu!Mætt í Þingaselið sem endra nær, og Iðnskólinn stundaður af krafti. Vínbúð Garðabæjar fær að njóta vínþekkingar minnar og mun ég sinna starfi mínu sem áfengismiðlari Garðbæinga af miklum krafti, og er ekki frá því að Garðbæingar sé hið geðþekkasta fólk. Þar stendur nú við hlið mér Hafþór bróðir minn sem að hefur gengið til lið vínþekkjara í Garðabæarumdæmi. Verð ég sérstaklega að þakka samstarffólki mínu fyrir stórkostlegt staffapartý um daginn.. haleluja... ekkert nema snillingar. Því miður gleymdi ég reyndar myndavélinni svo að þetta kemur aðeins til með að lifa í minningunni! Og að sjálfsögðu Hafþóri Val og Andra Bergmanni fyrir að skemmta liðinu með gömlum slögurum eftir að við drógum liðið frá Mosfellbæ í Holtakránna!
Náði mér í miða á seinustu stundu á showið á Broadway, fengum reyndar bara miða á einhverja aukasýningu kl 7 á laugardaginn, en er mjög spennt!!! Verður nú líkalega eitthvað tjútt eftir á, miðað við fyrri störf og reynslu.
En fylgist með...
aldrei að vita nema að ég bloggi reglulega... spennandi...
-Elsa- að lifna við...
Dararamm...Elsa Arney Helgadóttir
já... þá er maður lentur heima í sveitina! Ég er ekki frá því að það sé alltaf jafn unaðslegt að koma aftur heim í fagra fjörðinn kæra!Ég og MicroMachine renndum reyndar í hlað í Fellabænum fyrir u.þ.b. viku en þar sem tæknin er ekki til staðar á því heimili og Sprell tók allan minn tíma þá hefjast blogg færslur þessa sumars formlega núna!
En sum sé... þá er ég komin heim í sveitina og byrja hjá Skúla á morgun... hann er reyndar ekki heima svo miðað við gífurlega orku seinustu viku þá verður pleisinu sennilega rústað!
En ætla að fara að lúlla við undurfagran fuglasöng!!! Dararamm.. hvað það er gott að vera komin heim!
Elsa -home at last-
oj...Elsa Arney Helgadóttir
Á sólríkum degi sem þessum er fátt skemmtilegra en að liggja eins og skata fyrir framan Friends, með dúndrandi Streptakokka ,bryðjandi pensilín og verkjatöflur til skiptis! Var meira að segja að klára seinasta prófið mitt í morgun en...... ekki má fagna sökum dansandi skósveina djöfulsins í hálsinum. .... DAMN U ALL!!!!
Ég er samt ekki frá því að eftir seinustu mánuði mína, og vægast sagt hræðilega frammistöðu á sviði bloggs, sökum þess að ég virðist hafa verið haldið skelfilegri ritstíflu, sé fólkið kannski endanlega búið að gefast upp á mér... sem er sorglegt því ég að nú er stíflan að bresta! ég lofa.... svo til að ég nenni nú að flytja sögur úr sveitinni í sumar og svona þá ætla ég að biðja fólk vinsamlega um að commenta eða skrifa í gestabókina!
make your life fun...Elsa Arney Helgadóttir
Þessi skemmtilegi banner sem sést hér að ofan fannst á netinu fyrir forvitnissakir þegar að elsa.com var slegið inn. Fannst mér vel við hæfi að skella honum inná síðuna enda boðskapurinn góður.
Kom í ljós að "elsa" er svona eitthvað tæknifyrirtæki og t.d. er hægt að kaupa vöru á netinu sem að heitir Elsavision. Mæli þó ekki með þeirri "vision" því að mitt eigins Elsuvision er ekkert svo gott, alveg í mínus 4,25 og býð spennt eftir að eiga efni á laseraðgerð! Ég myndi því bíða eftir nýrri og uppfærðri tegund!
It´s a weird world I must say...
Elsa -tæknileg-
Merkilegt nokk...Elsa Arney Helgadóttir
þá hef ég ákveðið að færa mig eina ferðina enn... til að hnýta eigi endanlega fyrir letina hef ég fengið þá hugljómun að algjörlega nýtt umhverfi muni verða til þess að rithæfileikar mínir komi til með njóta sín frá deginum í dag og allavega langt fram á sumar og jafnvel eitthvað enn lengra fram í tímann!
Enda þarf nú austurlandselskandi fólkið að fá sögur úr sveitinni beint í æð!![]()
Annars styttist nú í heimferð, heim til fagra fjarðarins kæra þar sem að ég hef ákveðið að eyða sumrinu foreldrum mínum til mikillar ánægju án efa. Ég er líka ekki frá því að ég sé farin að hlakka bara helvíti mikið til enda langt síðan að ég hef verið heima í Dararamm...
Þetta verður vægast sagt Detox sumarið stóra í lífi mínu því nú hefur mín fjárfest í fokdýrum hlaupaskóm, takkaskórnir hafa einnig verið dregnir fram, og gönguskórnir næstir á dagskrá! Nú á að koma sér aftur í dúndrandi form og plús... foreldrum mínum til enn meiri ánægju ætlar litla barnið þeirra að hætta að reykja! as I said... Detox...
verst að maður á nú kannski eftir að sakna fólksins hérna fyrir sunnan... en tíminn líður hratt á gervihnattaöld og áður en við vitum af er sumarið liðið og alvara skólalífsins tekur aftur við! umm... peningaleysi og volæði... get ekki beðið!![]()
Annars var helgin fín... dúndrandi starfsmannapartý hjá Vínbúðinni í Garðabæ! Ekkert nema snillingar sem að vinna þar og þvílík skemmtun þrátt fyrir mjög aldursbreiðan hóp! Mjög gott... mjög gott!!!
Later...
Elsa - bráðlega á leiðinni heim-